| Fyrirtækið |
|
|
|
| Fimmtudagur, 29. mars 2007 21:11 |
|
StorIce ehf., stundar sérhæfðan rekstur í afritun og geymslu gagna í mjög öruggu umhverfi sem svipar til bankahvelfinga og -hólfa, nema á stafrænum grunni, þar sem gull viðskiptavinanna í stafrænu formi er geymt. StorIce ehf., er stór öryggisgeymsla fyrir gögn, fyrirtækja og einstaklinga. Gögnin eru afrituð og send dulkóðuð yfir nettengingu og geymd dulkóðuð á virkum miðlum sem endurnýjast með tæknibreytingum, þannig að þau verða læsileg eftir áratugi, ef því er að skipta. Aðeins viðskiptavinurinn hefur lykilinn til að lesa þau til baka. StorIce ehf., leggur metnað í að starfa eftir hæstu gæða- og öryggiskröfum, og notar dieselstöðvar fyrir varaafl til viðbótar við hefðbundna varaaflgjafa ef rafmagn fer af um lengri tíma. StorIce ehf., er staðsett rétt utan Hafnar í Hornafirði í ákaflega öruggu umhverfi. Staðsetningin er miðja vegu milli útlandasambanda Íslands við internetið. Fyrirtækið er í eigu Hornfirskra fyrirtækja og einstaklinga og er með höfuðstöðvar sínar þar. Óvíða á Íslandi er hægt að vera fjær náttúruhamfarasvæðum, en næstu þekktu jarðhræringasvæði eru í um 150 km fjarlægð í loftlínu, aðeins eru um 20 km í Hengilsvæðið frá Reykjavík, sem er frekar virkt jarðhræringasvæði og ekki mikið lengra á Keilissvæðið.
|
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 20. janúar 2010 23:27 |
Um fyrirtækið

