Heim Þjónusta
Almennt um þjónustuna Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 30. mars 2007 11:19

Örugg afritun um internet

Storice ehf., sérhæfir sig í gagnaafritun um internet þar sem gögnin eru dulkóðuð fyrir sendingu yfir netið.

 

Gögnin eru afrituð inná diskastæður í öruggum tölvusal sem staðsettur er utan Hafnar í Hornafirði. Tölvusalurinn er í húsi þar sem ekki fer fram önnur starfsemi og er hann búinn varaafli, bæði á rafgeymum og með diesel rafstöð. Húsið girt mannheldri girðingu, það vaktað og allur aðgangur skráður og myndaður. Öll aðstaða er hönnuð með hámarks rekstar- og aðgangsöryggi í huga. Spennistöð og varaafl er í sérbyggingu vegna eldvarnarsjónarmiða. Ekki er nein önnur starfsemi en tækjabúnaður StorIce ehf. í húsinu.

Gögn viðskiptavina eru dulkóðuð hjá notanda með 256DES dulkóðunarlykli, sem búinn er til við upphaf viðskipta og aðeins viðskiptavinurinn hefur undir höndum. Án lykilsins eru gögnin ólæsileg og þar af leiðandi er tryggt að einungis eigandi gagnanna getur lesið þau.

Gagnamiðstöðin er þannig uppbyggð, að allstaðar er haft í það minnsta tvöfalt kerfi, þannig að bilanir og utan aðkomandi aðstæður hafi sem minnst áhrif. Diskastæður eru bilanaþolnar og afrita sig á aðrar stæður.

Fyrir viðskiptavini, sem það vilja, er einnig mögulegt að afrita gögnin á annað landssvæði eða jafnvel erlendis.

StorIce ehf., býður upp á þann möguleika að afrita diskmyndir af mikivægum vélum, þannig að aðeins taki skammann tíma að endurbyggja netþjón eða aðra þá tölvu sem mynduð er.

StorIce ehf., býður uppá, ásamt samstarfsaðilum sínum, að vera með tilbúinn netþjón sem getur tekið við ef netþjónn viðskiptavinar bilar og er þá afritað jafnt og þétt af netþjóni viðskiptavinar og endurhlaðið jafn harðan á varaþjón. Aðeins tekur mínútur að færa starfsemina á varaþjóninn og lágmarka skaðann sem hlýst af stöðvun upplýsingakerfa.

StoIce afritun varðveitir gögn af neðangreindum kerfum:

  • Allar útgáfur Microsoft® Windows stýrikerfa sem eru í uppfæslu auk Windows NT4
  • Microsoft Exchange® v5.5, 2000 and 2003
  • Microsoft SQL Server® v7, 2000, 2005
  • UNIX (Solaris, AIX, HP-UX)
  • Linux
  • AS/400
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 19. janúar 2010 21:29