| Gagnavernd StorIce |
|
|
|
| Mánudagur, 14. maí 2007 22:59 |
|
StorIce ehf., sérhæfir sig í gagnaafritun um internet sem hentar bæði einstaklingum Hugbúnaður StorIce ehf., afritar opnar skrár, ásamt Microsoft SQL, Exchange, Unix/linux. Hugbúnaðurinn afritar póst af póstþjónum til langtíma geymslu og er þá hægt að ná í stök pósthóf eða boð. Einnig er mögulegt að eiga diskmyndir af tölvum, sem reglulega uppfærast sjálfvirkt. Fyrir þá sem þurfa að afrita mikið af gögnum á skömmum tíma er sett upp staðbundin afritun sem gerist á skömmum tíma innanhúss og speglar sig síðan í geymslur okkar hjá StorIce ehf., en aðeins þarf að hafa diskarými og/eða vélbúnað tiltækan. Óhætt er að fullyrða að vandfundin er betri leið til afritunar en StorIce afritun. Með þessari tækni afritast til að mynda fartölvur hvar sem þær eru í netsambandi og eru því ekki háðar því að vera inni á staðarneti fyrirtækisins. Í gegnum stjórnborð hugbúnaðarins er öll afritun sett upp, stýrt og fylgst með. Einfalt er að taka skýrslur um gang afritunarinnar, setja upp reglur t.d. til að framfylgja ýtrustu kröfum um geymslutíma og úreldingu gagna. StorIce ehf., uppfærir hugbúnaðinn miðlægt viðskiptavinum bæði að fyrihafnar- og kostnaðarlausu. Afritunin er umhverfisvæn, þar sem ekki þarf að eyða segulböndum eða öðrum geymslumiðlum og notuð er lágmarks orka. Aðeins er greitt fyrir afrituð gögn eftir þjöppun. Fjöldi tölva, netþjóna, afritun póstkerfa, gagnagrunna o.s.frv. er innifalið í verðinu. Ef óskað er eftir aðstoð við uppsetning þarf að greiða sérstaklega fyrir hana. |
| Síðast uppfært: Föstudagur, 26. nóvember 2010 17:55 |



og fyrirtækjum. Öll gögn eru dulkóðuð fyrir sendingu yfir netið og aðeins eru fluttar breytingar frá síðasta afriti. Notuð er mismuna afritun sem eingöngu afritar mismun gagna þó svo að þau séu einungis hluti af skrá, með þessu móti er ekki mikil netumferð fylgjandi afrituninni.